Læsir
Engjaskóli hefur bæst í hóp ótal skóla sem hafa gerst áskrifendur að Læsi appinu.
Læsir er einfalt og notendavænt app sem heldur utan um heimalestur nemenda.
Með því að skrá lestur í smáforritið safnast upplýsingar um hversu oft nemandi les og hversu margar mínútur í einu.
Nemendur safna síðan loknum bókum á rafrænar bókahillur.
Umsjónarkennarar hafa þegar byrjað gefa foreldrum aðgangskóða að appinu og hafa margir þegar skráð sig inn og byrjað að skrá heimalestur barna sinna.
Umsjónarkennarar munu senda frekari upplýsingar og aðgangsorð í næsta vikupósti.
Allar nánari upplýsingar um Læsi má finna hér á vefsíðu appsins.
Ýtarlegar leiðbeiningar fyrir forráðamenn má finna á þessari síðu.