Íþróttakennarar Engjaskóla fá viðurkenningu HR

Hulda Bjarkar frá HR, Bergrós, Hjördís Klara og Kristín
Íþróttakennarar viðurkenning HR

Íþróttakennarar þriggja grunnskóla fengu viðurkenningar Háskólans í Reykjavík fyrir framúrskarandi námsmat í íþróttum, þ.á.m.íþróttakennarar Engjaskóla, þær Bergrós Arna Jóhannesdóttir, Hjördís Klara Hjartardóttir og Kristín Guðmundsdóttir.

Viðurkenningin fór fram í HR 28. maí og var þetta í annað sem þessar viðurkenningar voru veittar.
Aðrir skólar, sem fengur viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsmat voru Rimaskóla og Sjálandsskóli.
Í umsögn dómnefnd sagði að hjá Engjaskóla er litið á hreyfimennt sem eina heild þar sem íþrótta- og sundkennarar vinna sem öflugt teymi. 
Íþróttakennarar Engjaskóla vinna með leiðsagnarmat og samþættingu í námi á mjög skýran og uppbyggilegan hátt ýmist í gegnum verkefni eða leik.

Við óskum þeim innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkeningu.

viðurkenning HR íþróttakennarar
Íþróttakennarar Engjaskóla fyrir miðri mynd. Frá vinstri: Bergrós, Hjórdís Klara og Kristín.

Hér má lesa grein af vefsíðu Háskólans í Reykjavík um viðurkenningar íþróttakennaranna.