Íþróttakennarar Engjaskóla fá viðurkenningu HR
Íþróttakennarar þriggja grunnskóla fengu viðurkenningar Háskólans í Reykjavík fyrir framúrskarandi námsmat í íþróttum, þ.á.m.íþróttakennarar Engjaskóla, þær Bergrós Arna Jóhannesdóttir, Hjördís Klara Hjartardóttir og Kristín Guðmundsdóttir.
Viðurkenningin fór fram í HR 28. maí og var þetta í annað sem þessar viðurkenningar voru veittar.
Aðrir skólar, sem fengur viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsmat voru Rimaskóla og Sjálandsskóli.
Í umsögn dómnefnd sagði að hjá Engjaskóla er litið á hreyfimennt sem eina heild þar sem íþrótta- og sundkennarar vinna sem öflugt teymi.
Íþróttakennarar Engjaskóla vinna með leiðsagnarmat og samþættingu í námi á mjög skýran og uppbyggilegan hátt ýmist í gegnum verkefni eða leik.
Við óskum þeim innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkeningu.
Hér má lesa grein af vefsíðu Háskólans í Reykjavík um viðurkenningar íþróttakennaranna.