Haustfrí 2026
Haustfrí grunnskóla í Reykjavík verður dagana 22.-26. október 2026.
Fríið er kjörið tækifæri fyrir börn og fjölskyldur til að gera eitthvað skemmtilegt saman.
Víða um borgina verður fjölbreytt dagskrá á söfnum og bókasöfnum þar sem má finna skapandi smiðjur, leik og ýmsa skemmtilega afþreyingu. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn verður líka kominn í hrekkjavökubúning fyrsta dag vetrar, þann 24. október, og býður upp á stórskemmtilega dagskrá fyrir öll sem þora.
Á vef Reykjavíkurborgar má finna yfirlit yfir dagskrá í haustfríinu: reykjavik.is/haustfri
Haustið er einnig góður tími til að kanna göngu- og hjólaleiðir, fara í fjöruferð, heimsækja útivistarsvæði borgarinnar, fara út að leika eða skella sér í sund. Sundlaugar Reykjavíkur eru átta og bjóða upp á góða aðstöðu fyrir fjölskyldur, hreyfingu og notalega samveru.
Á borginokkar.is má finna upplýsingar um sundlaugarnar og fjölmörg tækifæri til útivistar og afþreyingar.
Njótum frísins og þess sem borgin hefur upp á að bjóða.
Góða skemmtun!