Frábær gjöf frá Foreldrafélaginu

gjof_fra_foreldrafelaginu

Engjaskóla barst í vikunni mjög skemmtileg og gagnleg gjöf frá Foreldrafélagi Engjaskóla.

Um er að ræða JBL Partybox sem er stór þráðlaus hátalari og honum fylgdu tveir þráðlausir hljóðnemar. Frábært tæki sem foreldrar í 1. bekk fengu að njóta á fyrirlestri á sal skólans og heyrðist vel og skýrt í öllum fyrirlesurum.
Foreldrafélagið fær góðar þakkir fyrir frábæra gjöf.