Engjaleikarnir 29. september
Kæru foreldrar og forráðamenn
Þriðjudaginn 29. september verða Engjaleikar haldnir í skólanum.
Þetta er einn af skemmtilegustu dögum skólaársins þar sem fjölbreyttar stöðvar eru settar upp víðs vegar um skólann.
Þetta er einn af skemmtilegustu dögum skólaársins þar sem fjölbreyttar stöðvar eru settar upp víðs vegar um skólann.
Við skipulagningu stöðvanna er tekið mið af fjölgreindakenningu Howard Gardner og leitast við að virkja ólíka styrkleika nemenda, meðal annars málgreind, rök- og stærðfræðigreind, rýmisgreind, líkams- og hreyfigreind, tónlistargreind, samskiptagreind, sjálfsþekkingargreind og umhverfisgreind.
Nemendum er skipt í hópa þvert á árganga þannig að í hverjum hópi eru nemendur úr 1.-7. bekk. Nemendur í 7. bekk gegna hlutverki hópstjóra og leiða yngri nemendur í gegnum daginn. Engjaleikarnir eru orðnir að skemmtilegri hefð í Engjaskóla og hafa reynst afar vel til að efla samvinnu, ábyrgð og tengsl milli nemenda á öllum aldri.
Við minnum jafnframt á að miðvikudaginn 30. september er starfsdagur í Engjaskóla og því ekkert skólahald þann dag.
Með bestu kveðju,
Starfsfólk Engjaskóla.
Starfsfólk Engjaskóla.