Bryndís og Engjaskóli hlutu Hvatningarverðlaunin í ár
Bryndís Ingimundardótiir myndmenntakennari við Engjaskóla hlýtur Hvatningarverðlaun Skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur fyrir verkefnið Hamingjuhópurinn. Verkefnið dregur úr einmanaleika nemenda og eykur gleði og hamingju þeirra.
Engjaskóli hlýtur verðlaun fyrir verkefnið Hamingjuhópurinn sem hófst árið 2021 og hefur það markmið að draga úr einmanaleika og efla vellíðan nemenda. Hópurinn er skipaður fulltrúum allra árganga miðstigs og er drifinn áfram af stúlkum í 6. bekk. Nemendur vinna með félags- og tilfinninganám og svara hamingjukvarða þrisvar á ári. Hópurinn rýnir í niðurstöður og mótar aðgerðir sem byggja á gagnreyndum aðferðum og safnar einnig hugmyndum frá nemendum um hvernig bregðast megi við niðurstöðum. Á yfirstandandi skólaári var svokölluð Hamingjustund innleidd í starfið. Hamingjustund fer fram vikulega og byggir framkvæmd hennar á jákvæðum inngripum, VIA-styrkleikum og Circle Solutions. Hamingjustund veitir bæði nemendum og kennurum verkfæri til að efla sjálfsmynd, félagsfærni og jákvæða líðan.
Innilega til hamingju Bryndís, Hamingjuhópurinn og Engjaskóli.
Engjaskóli, Rimaskóli og skólasafn Laugarnesskóla hiutu Hvatningarverðlaunin að þessu sinni og hér má sjá frétt á Reykjavik.is um viðburðina.