Útskrift 7. bekkjar 2025

Útskrift 7. bekkjar í Engjaskóla fór fram fimmtudaginn 5. júní.
Útskrftin fór ljómandi vel fram að viðstöddum nemendum, foreldrum og starfsfólki skólans.
Álfheiður skólastjóri hélt ræðu og fulltrúar foreldra í 7. bekk færðu umsjónarkennurunum, Gunnari Bessa og Fríðu, þakklætisvott fyrir sérlega vel unnin störf.
Að því loknu var Pálínuboð í boði foreldra og svignuðu borðin undan kræsingunu.
Síðan héldu allir út í sólskinið.
Gleðilegt sumar!