Poppdagurinn mikli haldinn hátíðlegur

Popplestur

Poppum upp lesturinn!

Undanfarnar vikur hafa nemendur Engjaskóla keppst við að lesa heima, enn meira en venjulega. Markmiðið var að lesa sem mest og skrá lesturinn á poppkornsblöð, sem fóru svo upp á vegg í anddyrinu.
Hver og einn árgangur safnaði poppmaís í krukkur í staðinn fyrir þær mínútur sem voru lesnar. Í dag, föstudaginn 2. maí, var svo poppdagurinn haldinn hátíðlegur. Allar bauninar voru poppaðar og hver nemandi fékk sitt kramarhús fullt at gómsætu poppi.
Hér má sjá nemendur í 2. bekk fá sitt.