Foreldrafélagið færði góðar gjafir

Nemendur 4. bekkjar með sumargjöfina

Foreldrafélag Engjaskóla færði nemendum skólans góða sumargjöf.

Mánudaginn 28. apríl kom foreldrafélag Engjaskóla færandi hendi með sumargjöf til allra nemenda Engjaskóla. Allir bekkir fengu fótbolta, körfubolta og litakrítar.
Nemendur voru himinlifandi með gjöfina og byrjuðu strax að njóta.
Það er óhætt að segja að gjöfin hafi hitt í mark þar sem nemendur Engjaskóla eru mjög duglegir að leika sér úti í góðu vorveðrinu.

Á myndinni má sjá nokkra nemendur 3. bekkjar með sumargjöfina frá Foreldrafélaginu.