Skólaþing Engjaskóla 2026

skolathing2

Skólaþing Engjaskóla var haldið föstudaginn 20. nóvember. Nemendur allra árganga frá 1. til 7. bekk unnu saman á málþingi þar sem umræðuefnin voru margvísleg. 

Nemendur 7. bekkjar stýrðu umræðunum og viðfangsefnin voru spurningar, sem snerta nemendur í sínu skólastarfi: 
- Hvernig eru góðir nemendur og hvað einkennir góða kennara?
- Hver eru hlutverk nemenda og hvlutverk kennara?
- Hvað einkennir góða kennslustund og hvað gerir hana áhugaverða og gagnlega?
- Hvaða markmið er hægt að setja sér í námi?
- Hvernig er hægt að skila verkefnum á skapandi hátt og þar kom fram að nemendur vilja gjarnan skila verkefnum á sem fjölbreyttastan hátt.
Að síðustu voru nemendur beðnir um að koma með hugmyndir að þemum fyrir þemadagana, sem haldnir verða á vorönn.
Nemendur í 7. bekk sáu um fundarstjórn, ritun og tímavörslu í hópum.
 

skolathing5

Það sem eftir var dags var unnið með Barnasáttmálann. Nemendur töluðu saman um sáttmálinn og mikilvægi hans og síðan endurnýjuðu nemendur eldri myndir og komu þeim nýju fyrir á stóra Barnasáttmálanum okkar en forsíðumyndin hér að ofan er af endurnýjuðum Barnasáttmála.
Nemendur stóðu sig mjög vel og skiluðu vel unnum verkum.
Það ber þó sérstaklega að hrósa nemendum 7. bekkjar sem stóðu sig með stakri prýði og stýrðu vinnunni af röggsemi.
 

skolathing3