Íslenskuverðlaun unga fólksins afhent á degi íslenskrar tungu
Íslenskuverðlaun unga fólksins voru afhent við hátíðlega athöfn í Norðurljósasal Hörpu á degi íslenskrar tungu. Verðlaunin voru veitt í tuttugasta sinn að þessu sinni.
Markmið verðlaunanna er að auka áhuga grunnskólanema í Reykjavík á íslenskri tungu og hvetja þá til framfara í tjáningu í töluðu og rituðu máli.
Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er verndari verðlaunanna.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur flutti ávarp í upphafi og kór Rimaskóla undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur flutti þrjú lög.
49 nemendur úr grunnskólum Reykjavíkur voru verðlaunaðir en þau voru veitt nemendum sem höfðu skarað fram úr í íslensku, sýnt metnað í námi sínu og áhuga á fjölbreytileika íslenskrar tungu.
Engjaskóli tilnefndi þá Hreiðar Birki Baldvinsson úr 7. bekk og Hermann Gísla Sæmundsson úr 2. bekk.
Hreiðar fékk sína tilnefningu fyrir m.a. óvenju ríkulegan orðaforða og mikinn lestraráhuga.
Hermann hlaut sína tilnefningu meðal annars fyrir að vera einstaklega sterkur í íslensku og búa yfir öryggi og færni í lestri.
Þeir félagar eru vel að þessum heiðri komnir og óskum við þeim innilega til hamingju!
Hér eru þeir Hermann og Hreiðar ásamt Álfheiði skólastjóra.