Gullskórinn og Ólympíuhlaupið

lukkudýr 1

Gullskórinn og lukkudýr Ólympíuleikanna 2024 voru afhent mánudaginn 12. október í salnum.

Gullskórinn er veittur þeim árgangi sem nýtir best virkan ferðamáta.

Markmiðið með verkefninu Göngum í skólann er að hvetja börn að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skólanum.  Nemendur skráðu í 3 vikur hvernig þeir mættu í skólann.

Á yngsta stigi sigraði 4. bekkur og á miðstigi sigraði 7. bekkur.

lukkudýr 2

Á myndinni má sjá Kristínu íþróttakennara (lengst til vinstri), sem heldur utan um þessa viðburði og Álfheiði skólastjóra ásamt fulltrúum nemenda frá 1. til 4. bekk.

Lukkudýr Ólympíuleikanna er veitt þeim árgangi sem hljóp lengst í Ólympíuhlaupinu sem fór fram 28. september en í ár voru það 6. bekkur sem vann en þau hlupu 200 km eða að meðaltali 8,3 km pr. nemenda.  
Í öðru sæti varð  4. og 7. bekkur sem hljóp 215 og 185 km eða 7,4 km að meðaltali pr nemenda.

Úrslit Ólympíuhlaupsins 2026

Bekkur Vegalengd pr nem
6. bekkur 200 km 8.3 km
4. bekkur 215 km 7.4 km
7. bekkur 185 km  7.4 km
2. bekkur 238 km 7 km
5. bekkur 177 km 6.8 km
3. bekkur 172 km 6.6 km
1. bekkur 147 km 5.1 km