Íþróttadagur í Engjaskóla 2. september - skertur dagur
Kæru foreldrar/forráðamenn.
Miðvikudaginn 2. september verður íþróttadagur í Engjaskóla, þar sem nemendur taka þátt í fjölbreyttum íþróttaleikjum og hreyfingu.
Um er að ræða skertan skóladag og lýkur skóla klukkan 12:00
Nemendur sem eru skráðir í Brosbæ verða í umsjón stuðningsfulltrúa og skólaliða frá kl. 12:00 til 13:40
Skólabíll fer frá skólanum kl. 12:10