Engjaskóli á Menntabúðum

Gunnar og Trausti

Mánudaginn 20. apríl héldu Mixtúra, sem er sköpunar- og upplýsingatækniver SFS, Háskóli Íslands, Reykjavíkurborg og fleiri aðilar, fjölbreyttar Menntabúðir í Sögu, sem áður hét Hótel Saga. Á þessum Menntabúðum voru kynntar mjög fjölskrúðugar og skemmtilegar lausnir á sviði menntamála, s.s. gervigreind, útivera, Seesaw, Evolytes, þrívíddarverkefni, lestrarklúbbar og annað læsi í ólíkum og alls kyns búningum. 

Borgaskóli og Engjaskóli settu upp hlaðvarpsstúdíó á Sögu og fengu þátttakendur á Menntabúðum í viðtöl og tóku auk þess upp myndbönd frá vettvangi. 
Tveir nemendur úr Borgaskóla, þær Karlotta og Stefanía, og tveir nemendur úr Engjaskóla, þeir Gunnar Helgi og Trausti Steinn, stóðu vaktina og unnu verkið af stakri prýði með aðstoð kennara frá skólunum. 
Að auki kynnti Bryndís Ingimundardóttir, myndmenntakennari við Engjaskóla, Hamingjuverkefnið sem hún hlaut Hvatningarverðlaun Reykjavík fyrir fyrr á árinu. 
 

Bryndís


Þær Birna Sif Kristinsdóttir og Halldóra Gunnarsdóttir, umsjónarkennarar 2. bekkjar í Engjaskóla, voru svo þátttakendur í glæsilegum hópi, kynnti sem kynnti viðamikið verkefni á vegum Reykjavíkurborgar, sem hét gervigreindur grunnskóla. 
 

Birna og Halldóra


Fréttafólk frá RÚV komu í heimsókn á Menntabúðirnar og tóku meðal annars viðtöl við nemendur Borga- og Engjaskóla þar sem þeir voru að störfum og birtust viðtölin í Krakkafréttum sama dag. 
Hér má sjá viðtölin og frekari kynningu á Menntabúðunum. Það er því óhætt að segja að Engjaskóli hafi staðið sig með miklum sóma þennan blíðviðrisdag í apríl.
 

Gunnar og Trausti í viðtali